Wednesday, April 30, 2008

Og hver man ekki eftir þessum gamla smell?!

Gotta Love it!


~Spookyo_O is feeling silly nilly.

Thursday, March 20, 2008

Sometimes when natural victims fight back natural preditors.... they win!

Tuesday, March 04, 2008

"It's not about who the villains are, It's about who the heroes are going to be."



~Spookyo_O has renewed hope for life.
Haffi með youtube myndband? ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ! :D

Vá maður! Þetta er einhvert flottasta kvikmyndaklipp sem ég hef séð!: http://polpope.deviantart.com/art/THE-BLIND-SPOT-67381815

~Spookyo_O loves film

Tuesday, February 05, 2008

Tuesday, January 29, 2008

This is Pina Bausch dance theatre... 'tis be very coooooooooooool! :)



~Spookyo_O wishes he was a dancer.

Sunday, January 27, 2008

Hvar er lýðræðið?! hvað er sérstakt við okkar yndislega land og okkar menningu þegar þeir sem eru við stjórnvöl eru að reyna að koma af stað ónáttúrulegri stökkbreytingu sögu okkar?! Viljum við vera Ameríka? Ég vil halda að við séum einstakari en það. Þessi síða er með myndum af húsunum sem á að rífa fyrir græðgina. Þessi hús gera Reykjavík að því sem hún er. Verndum fallegu miðborgina okkar af því að við elskum hver hún er: Einstök!

http://laugavegur.net/

On this page you can see pictures of buildings that are important to Iceland's capital's history, Reykjavík is unique, let's keep it that way!

~Spookyo_O Loves his home.

Monday, January 07, 2008

Þetta er fyrir Örnu mína :P af því að ég elska þig og sakna þín ;)

Monday, December 17, 2007



I'M A SLAAAAAAAAVE TO THE RYTHM! OH YEAH!

~Spookyo_O is booty shakin'!

Tuesday, December 11, 2007

imsorrydave.jpg
moar funny pictures

Thursday, December 06, 2007

Haffi, þ.e.a.s. ég, er að koma heim á laugardaginn 8. des. =) því til fagnaðar ætlar hann að fara á Q bar um kvöldið og honum þætti vænt um ef þeir sem hafa áhuga á að sjá hann aftur eftir 3 mánaða bil gætu komið og hitt hann.

Hann býst við því að vera á Q bar mestallt kvöldið en ætlar einnig að athuga nýja gay staðinn "black". Anyway.

Fuckus! hehehe..

~Haffi

Sunday, December 02, 2007

Jæja, komin tími til almennilegrar færslu held ég :)

Haffi er bara komin í jólafíling skal ég segja þér! Er að nýta mér þessa yndislegu síðu Pandora sem er síða þar sem þú skráir þig inn og ferð svo bara að slá inn nöfn á tónlistarmönnum eða bara lögum sem þú fílar, stöðin leggur það sem þú slærð inn á minnið og reynir að spila meiri tónlist sem hún heldur að þú fílir ;) Ég er með tvær stöðvar, önnur er bara almennt my kind of music en hin OHOHOHHOOOOO! það er jólastöðin hans Haffa! :D "I'll be home for christmas..."

Ég var í dag að klára ritgerð, 2500 orða bleðil um Henrik Ibsen's Ghosts... ég get sagt ykkur það að ég er komin með svo sjúkt ógeð af orðinu conformity að ég fæ bara æluna upp í háls við að hugsa það!
Þetta þýðir að það er aðeins eitt verkefni enn sem stendur í vegi mínum að komast heim á elsku besta klakann minn! Þetta verkefni er sýning á senum úr Woyzeck, við eigum að nýta okkur æfingar úr tímum til að devisa atriðin og í lokin bæta textanum við... MIKLU flóknara en það hljómar!

Svo er það málið með merðina okkar... þessar elskur! Við vorum með tvo, Lubba og Smoothie. Hann Lubbi beit... þannig að við þurftum að skila honum en í staðin fengum við 4 ára mörð sem hafði núþegar verið geldur. Hann var alger kúridýr þannig að við akváðum að kalla hann Blíðfinn (eða Bóbó). Ömurlega er að við fengum tilkynningu frá leigufyrirtækinu sem við tilheyrum undir að segja okkur að við megum ekki vera með gæludýr samkvæmt samningi. Þetta er svo megamikið bull þar sem að þegar við vorum að skrifa undir samningin þá segir gellan okkur að klásan um gæludýr er það sem er kallað "unfair clause" og að við mættum vera með dýr svo lengi sem að við létum þau vita af því fyrst. Þannig að við vorum ekki búnir að vera pabbar í viku þegar við þurftum bara að skila þeim aftur, peningur í vaskinn skal ég segja þér. Núna horfi ég í tóma búrið og fæ smá sting í hjartað af söknuði.

Fyrir þá sem vilja hitta mig eitthvað í desember mega hafa það bakvið eyrað að ég mun vera að vinna stóran part af fríinu mínu á kaffitár í Lágmúlanum. Tilvalið að ef viðkomandi á leið hjá að hann/hún komi við og heilsi uppá mig :P

OH MY GOD! Kristján var að taka föt úr þurrkaranum og vafði nokkrum volgum flíkum utan um mig... ég held að húðin mín sé í alsælu!

Það er alveg tjúllað veður hérna, búið að vera sjúkt rok í allan dag og í smástund hélt ég að trén ætluðu að fara uppúr jörðinni.

anyway... komið gott :)

Ég elska ykkur!!! (you know who you are)

~Spookyo_O is jazzified!

Sunday, November 25, 2007






Jæja, tími til komin að kynna ykkur fyrir nýju meðlimum í fjölskyldunni okkar hérna í Tidlock House! Þetta eru Lubbi (þessi dökki) og Smoothie (albínóinn), þeir eru Ferret (á ensku) eða Frettur (á íslensku) en ég vil frekar segja merðir...

Smoothie er uppáhaldið mitt, hann er blíður og glettinn og finst gott að láta klappa sér ;)

Lubbi er æði líka nema að fyrstu kynni okkar (bara í gær) og þær stundir sem eftir fylgdu er því miður mikið af honum að bíta mig... og hann bítur fast! Við ætlum okkur að kenna honum að bíta ekki en ef það gengur ekki þá verðum við að skila honum í von um að hann geti fundið betra heimili með fólk sem er vant frettum.

Segið "Hæ Lubbi & Hæ Smoothie"!!

~Spookyo_O er pabbi!

Friday, November 16, 2007

Jæja kvennkynhneigðir! HAHAHA! þetta er dæmi um tvo kennara sem eru að kenna mér! :P hehe finst ykkur þær ekki vera foxy? I know you do...


Monique Hunt: http://www.mediafever.co.uk/site_photos/monique%20hunt.jpg

Alexia Kokkali: http://uk.castingcallpro.com/portfolioraw/17/86795.jpg


~Spookyo_O Stoltur af æðislegu kennurunum sínum (öllum... þetta eru bara þær einu sem ég fann myndir af)